
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, á svölum Alþingishússins. Mynd: forseti.is
Forseti Íslands með ávarp á Dönskum dögum í Stykkishólmi
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun ávarpa hátíðargesti í tilefni af 30 ára afmæli Danskra daga sem fram fara í Stykkishólmi um helgina. Danskir dagar eru með eldri bæjarhátíðum hér á landi. Hátíðin var upphaflega skipulögð og hrundið af stað af atvinnulífinu þar í bæ, ekki síst í þeim tilgangi að lengja ferðatímabilið, sem á þeim tíma var að líða hjá þegar kom fram yfir miðjan ágúst.