
Þessi voru með penslana á lofti. Ljósm. akranes.is
Yfir þrjú hundruð unglingar í Vinnuskólanum á Akranesi í sumar
Síðasti starfsdagur Vinnuskólans á Akranesi var síðasta miðvikudag. Alls sóttu 320 unglingar um vinnu í Vinnuskólanum í sumar. Þeir unnu á mismunandi tímabilum yfir sumarið en flestir voru í vinnu á fyrstu vikum skólans. Starfseminni var skipt niður á sjö hverfi eða starfsstöðvar, þar sem hver hópur sá um ákveðin verkefni í hverju hverfi. Vinnan fólst aðallega í slætti og snyrtingu á stofnanalóðum, leiksvæðum og öðrum opnum svæðum í bænum. Veðrið í sumar var ekki beint spennandi til útivinnu og í slíkri rigningartíð ganga hlutirnir oft erfiðlega fyrir sig.