
Litrík skemmtun á Vinavelli í Hvalfjarðarsveit
Litahlaupið í Hvalfjarðarsveit var haldið í gær í Melahverfi. Þátttaka var góð og mikil gleði við völd. Þrátt fyrir smá rigningu, mættu þátttakendur glaðir til leiks og skemmtu sér vel. Áður en hlaupið hófst hélt Háski uppi stemningu á svæðinu með nokkrum lögum og sá einnig um að telja niður í upphaf hlaupsins. Hlaupið var rúmlega 1,6 km langt. Að því loknu var boðið upp á hressandi Hleðslur frá MS og var pítsa matarvagn á svæðinu.