Bækistöðvar Skagans 3X við Krókalón á Akranesi. Ljósm. mm

Ekki verður af sölu þrotabús Skagans 3X í heilu lagi

Nú er lokið viðræðum setts skiptastjóra í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi við hóp fjárfesta sem gert hafði alls tvö tilboð í eignirnar. Helgi Jóhannesson skiptastjóri staðfestir í samtali við Skessuhorn að þeim viðræðum sé nú lokið og fullreynt með að salan gangi eftir. „Ástæðan er sú að ekki tókst að uppfylla skilyrði í tilboðunum um að fasteignir þrotabúsins við Krókalón fylgdu með í kaupunum. Fyrirætlan tilboðsgjafa var að endurræsa reksturinn í sem næst eins mynd á Akranesi og hann var fyrir gjaldþrot fyrirtækisins,“ segir Helgi og bætir við: „Næsta skref er því að sett verður í annan gír. Eignir þrotabúsins verða seldar í hlutum og reynt að hámarka virði þrotabúsins eins og lög gera ráð fyrir,“ segir Helgi Jóhannesson.

Ljóst er að gjaldþrot Skagans 3X og árangurslaus tilraun skiptastjóra að selja fyrirtækið í starfhæfu ástandi er reiðarslag fyrir starfsfólk og samfélagið allt á Akranesi. Fyrir gjaldþrotið í sumar störfuðu um 130 manns hjá fyrirtækinu við þróun, framleiðslu og sölu hátæknibúnaðar til matvælavinnslu.