Fréttir

true

Tap Skagamanna gegn Stjörnunni

Meistaraflokkur karla hjá ÍA tapaði gegn Stjörnunni 1:3 í leik sem fram fór 28. júlí sl. Skagamenn leiddu í hálfleik 1:0 með marki frá Viktori Jónssyni, sem kom á lokaandartökum hálfleiksins. Stjörnumenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og jöfnuðu með marki frá Baldri Loga Guðlaugssyni. Skot Baldurs Loga virtist hættulítið af löngu færi…Lesa meira

true

Káramenn með örugga forystu á toppi þriðju deildar

Káramenn frá Akranesi léku tvo leiki í lok júlí í sumarfríviku Skessuhorns – og unnu þá báða.  Fyrri leikurinn var gegn Vængjum Júpiters á Fjölnisvelli og lauk honum með sigri Káramanna 3:0. Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði strax á 14. mínútu leiksins fyrir gestina í Kára og í síðari hálfleik bætti Hektor Bergmann Garðarsson við tveimur…Lesa meira

true

Mokveiði í Laxá í Dölum

„Veiðin gekk frábærlega hjá okkur í Laxá, en við fengum 24 laxa á tveimur dögum en síðustu dagar hafa gefið yfir hundrað laxa,“ sagði Hilmar Hansson í samtali við Skessuhorn. Ótrúlega góð veiði hefur verið þar eftir að áin fór að sjatna eftir miklar rigningar. „Við Oddný fengum 24 laxa saman og það gekk vel…Lesa meira

true

Göngumanni bjargað

Í gærkvöldi bárust boð til björgunarsveita í Borgarfirði og á Akranesi um að aðstoða þyrfti mann sem hafði meiðst á göngu á Baulu í Norðurárdal. Gekk björgunin eftir atvikum vel. Fjallið er stórgrýtt og erfitt yfirferðar, um 930 metra hátt. Björgunarsveitarmenn voru komnir að fjallinu um ellefu leytið í gærkvöldi og þyrla Landhelgisgæslunnar var komin…Lesa meira

true

Næsta tölublað 14. ágúst

Eins og fram hefur komið er starfsfólk Skessuhorns í sumarleyfi og er skrifstofa fyrirtækisins lokuð fram til miðvikudagsins 7. ágúst. Fréttaþjónusta er samt á skessuhorn.is þessa frídaga og skal senda tilkynningar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is. Næsta tölublað kemur út 14. ágúst.    Lesa meira

true

Skagakonur gerðu jafntefli gegn Fram og sigruðu Selfyssinga

Lið Skagakvenna spilaði tvo leiki á sumarfrí tíma Skessuhorns. Mætti liði Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal, 25. júlí síðastliðinn. Liðin skiptu með sér stigunum í 1:1 jafntefli. Skagakonur byrjuðu leikinn vel og Erla Karitas Jóhannessdóttir kom þeim yfir strax á sjöttu mínútu leiksins. Héldu þær forystunni þar til um fimmtán mínútum fyrir leikslok þegar heimakonur…Lesa meira

true

Að taka þátt og njóta leiksins

Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi lauk með heilmikilli tónleikadagskrá og glæsilegri flugeldasýningu í gærkvöldi. Að sögn mótshaldara hefur allt gengið vel fyrir utan sinueld sem kviknaði í gærkvöldi á flugeldasýningunni en var fljótt slökktur af Slökkviliði Borgarbyggðar. Mótið var vel sótt, um 1.000 þátttakendur voru skráðir til leiks og nokkur þúsund manns voru í bænum…Lesa meira

true

Lognið vantar

Enn og aftur nálgast djúp lægð nálgast Ísland með tilheyrandi leiðindaveðri um allt land næsta sólarhringinn. Veðurstofan greinir frá þessu. Þó verður veðrið skaplegt hér á Vesturlandi. Það gengur í norðaustan hvassviðri eða storm syðst á landinu frá Öræfum og vestur undir Eyjafjöll. Talsverð eða mikil rigning fylgir lægðinni á Suðausturlandi og Austfjörðum og má búast…Lesa meira

true

Listasmiðjan á Bifröst sýnir í Safnahúsi

Í ágúst má sjá verk frá Listasmiðjunni á Bifröst í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi undir heitinu „Sköpun er ekki valkostur heldur nauðsyn.“ Það er Christina Attensperger sem starfrækir listasmiðjuna fyrir flóttafólk og hælisleitendur sem sjálfboðaliði Rauða Krossins í samstarfi við Borgarbyggð og Háskólann á Bifröst. Hún stóð líka fyrir sýningu úkraínskra kvenna í Safnahúsinu fyrir…Lesa meira

true

Hlýjast vestanlands í dag en hvessir á morgun á Snæfellsnesi

Það hvessir aftur í dag sunnan- og suðaustanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu. Í Öræfum við Svínafell og Skaftafell má reikna með hviðum allt að 35-40 m/s frá hádegi og fram á kvöld. Eins í Mýrdal og sums staðar undir Eyjafjöllum með ANA-átt frá því um miðjan dag og fram á nótt.  Á morgun hvessir enn frekar…Lesa meira