Listasmiðjan á Bifröst sýnir í Safnahúsi

Í ágúst má sjá verk frá Listasmiðjunni á Bifröst í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi undir heitinu „Sköpun er ekki valkostur heldur nauðsyn.“ Það er Christina Attensperger sem starfrækir listasmiðjuna fyrir flóttafólk og hælisleitendur sem sjálfboðaliði Rauða Krossins í samstarfi við Borgarbyggð og Háskólann á Bifröst. Hún stóð líka fyrir sýningu úkraínskra kvenna í Safnahúsinu fyrir tveimur árum, þar sem unnið var með sköpunarkraftinn til að takast á við erfiðar aðstæður í nýjum heimkynnum. Síðastliðið haust bættust svo hælisleitendur við í hópinn sem glíma við svipaðar aðstæður auk óvissunnar um hvort þeir fái að vera á Íslandi eða verði vísað brott.

Listasmiðjan á Bifröst sýnir í Safnahúsi - Skessuhorn