Hilmar Hansson með flottan lax úr Laxá í Dölum.

Mokveiði í Laxá í Dölum

„Veiðin gekk frábærlega hjá okkur í Laxá, en við fengum 24 laxa á tveimur dögum en síðustu dagar hafa gefið yfir hundrað laxa,“ sagði Hilmar Hansson í samtali við Skessuhorn. Ótrúlega góð veiði hefur verið þar eftir að áin fór að sjatna eftir miklar rigningar. „Við Oddný fengum 24 laxa saman og það gekk vel veiðin hjá okkur, eiginlega bara mokveiði,“ sagði Hilmar.

Mokveiði í Laxá í Dölum - Skessuhorn