Að taka þátt og njóta leiksins

Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi lauk með heilmikilli tónleikadagskrá og glæsilegri flugeldasýningu í gærkvöldi. Að sögn mótshaldara hefur allt gengið vel fyrir utan sinueld sem kviknaði í gærkvöldi á flugeldasýningunni en var fljótt slökktur af Slökkviliði Borgarbyggðar. Mótið var vel sótt, um 1.000 þátttakendur voru skráðir til leiks og nokkur þúsund manns voru í bænum um helgina. Gríðarlegur fjöldi sjálfboðaliða tók þátt í mótinu, víða úr Borgarfirði.  Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri Borgarbyggðar lét ekki sitt eftir liggja og dæmdi leiki í grashandbolta af fagmennsku og ungmennafélagsanda.

Veðrið reyndist vera með besta móti á landsvísu. Alls var boðið upp á átján keppnisgreinar á mótinu: Badminton, bogfimi, borðtennis, frjálsar íþróttir, glímu, golf, grasblak, grashandbolta, hestaíþróttir, hjólreiðar, knattspyrnu, kökuskreytingar, körfubolta, pílukast, skák, stafsetningu, sund og upplestur. Ungmennin stóðu sig afar vel og sjá má úrslit keppnisgreina með því að smella hér

Aðsókn í kökuskreytingakeppni sprengdi allar væntingar. Rúmlega 400 keppendur tóku þátt bæði í einstaklings- og liðakeppni og varð að skipta keppninni upp í nokkra aldursflokka. Mikill fjöldi foreldra, forráðafólks og systkina fylgdist spennt með. 

Margir mótsgesta fóru af stað eftir tónleikana í gærkvöldi enda ekki hagstæð veðurspá fyrir öll þau hjólhýsi og búnað sem fólk gisti í.  Þess má að lokum geta að Unglingalandsmóti UMFÍ verður á Egilsstöðum á næsta ári.

Að taka þátt og njóta leiksins - Skessuhorn