
Hlýjast vestanlands í dag en hvessir á morgun á Snæfellsnesi
Það hvessir aftur í dag sunnan- og suðaustanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu. Í Öræfum við Svínafell og Skaftafell má reikna með hviðum allt að 35-40 m/s frá hádegi og fram á kvöld. Eins í Mýrdal og sums staðar undir Eyjafjöllum með ANA-átt frá því um miðjan dag og fram á nótt. Á morgun hvessir enn frekar á landinu og þá einkum norðvestan til s.s. á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum.