
Göngumanni bjargað
Í gærkvöldi bárust boð til björgunarsveita í Borgarfirði og á Akranesi um að aðstoða þyrfti mann sem hafði meiðst á göngu á Baulu í Norðurárdal. Gekk björgunin eftir atvikum vel. Fjallið er stórgrýtt og erfitt yfirferðar, um 930 metra hátt. Björgunarsveitarmenn voru komnir að fjallinu um ellefu leytið í gærkvöldi og þyrla Landhelgisgæslunnar var komin á vettvang um miðnættið. Göngumaðurinn sem var íslenskur hafði klifið fjallið ásamt syni sínum en hafði meiðst á handlegg og gat ekki komist niður af sjálfsdáðum. Tókst að koma honum niður fjallið og þyrlan flutti hann undir læknishendur. Björgunarsveitarmenn í útkallinu voru m.a. frá Björgunarfélagi Akraness og Björgunarsveitunum Oki, Heiðari og Brák. Þeir voru komnir heim nú í morgunsárið, eflaust hvíldinni fegnir.