Fréttir

true

Naumt tap Skagakvenna gegn Gróttu

Meistaraflokkslið Skagakvenna í knattspyrnu tapaði naumlega gegn Gróttu 2:3 þegar liðin mættust á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í gær. Fyrirfram var búist við jöfnum en spennandi leik þar sem liðin voru jöfn að stigum í deildinni. Heimakonur í Gróttu náðu forystunni þegar hin 15 ára gamla Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom Gróttu í 1:0 á 34. mínútu…Lesa meira

true

Formlegt tilboð hefur borist í eignir Skagans 3X

Helgi Jóhannesson skiptastjóri í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi staðfestir í samtali við Skessuhorn að hópur fjárfesta hafi í gærkveldi lagt inn formlegt tilboð um kaup á öllum eignum og rekstri þrotabúsins. Tilboðið er einnig háð því að fasteignir fáist keyptar. Helgi segir að viðræður á forsendum tilboðsins fari í gang strax eftir helgi og…Lesa meira

true

Heiðraðar fyrir landsliðsþátttöku fyrir frækinn landsleik í gær

Íslenska kvennlandsliðið í knattpyrnu vann frækinn 3-0 sigur á Þýskalandi í leik sem spilaður var á Laugardalsvelli í gær. Er Ísland þannig með fyrstu þjóðum til að tryggja sér keppnisrétt á EM sem spilað verður í Sviss á næsta ári. Fyrir leik voru tvær landsliðskempur heiðraðar með UEFA húfu fyrir 100 landsleiki. Það voru þær…Lesa meira

true

Gul viðvörun í gildi fram til morguns

Í dag og allt til fyrramáls er í gildi gul viðvörun fyrir allt vestanvert landið. Það verður sunnan 8-15 m/s og talsverð eða mikil rigning, einkum á Snæfellsnesi, Mýrum og sunnanverðum Vestfjörðum. Ár og lækir munu vaxa mikið og geta orðið erfiðar yfirferðar, en einnig aukast líkur á aurskriðum og grjóthruni. Fólk er því hvatt…Lesa meira

true

Gamla myndin – Tölvuþjónustan flutti sig um set

Það er oft fróðlegt að glugga í gamlar myndir í safni Skessuhorns. Í október 2004, fyrir næstum 20 árum, flutti Tölvuþjónustun á Akranesi í nýtt og sérhæft tölvusetur og rúmgóða tölvuverslun við Esjubraut 49 á Akranesi. Grípum niður í fréttina: „Húsið er 380 m2 að stærð og skiptist að stærstum hluta í verslun, verkstæði, rúmgóða…Lesa meira

true

Stefna að kílómetragjaldi fyrir öll ökutæki eftir næstu áramót

Fjármálaráðuneytið er með í samráðsgátt svokallað áformaskjal og er hægt að gera athugasemdir til 12. ágúst næstkomandi. Það snýst um að innleitt verði „nýtt, einfaldara og sanngjarnara kerfi,“ eins og það er orðað, þar sem greitt verður almennt kílómetragjald á ökutæki í stað sértækra gjalda á bensín og olíu. Markmiðið er að tryggja sjálfbæra fjármögnun…Lesa meira

true

Varað er við vatnavöxtum og hættu á skriðuföllum á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum

Veðurspáin nú gerir ráð fyrir mjög mikilli úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi um helgina. Veðurstofan varar við vatnavöxtum og aukinni skriðuhættu á þessum svæðum. Í kvöld koma skil upp að vestanverðu landinu og gera má ráð fyrir því að það verði samfelld rigning alla helgina.  “Það er ekki algengt að fá svona mikla…Lesa meira

true

Góður gangur í veiðinni í Andakílsá

„Við vorum að koma úr Andakílsá í Borgarfirði og fengum 31 lax á tveimur dögum, þannig að þetta var ævintýralega ferð,“ sagði Ingvar Júlíus Guðmundsson en hann og veiðifélagar hans voru fjórir og hafa allir veitt þarna áður, en aldrei gert viðlíka veiði eins og nú. „Þetta var meiriháttar og fiskur á nokkrum stöðum, en…Lesa meira

true

Stefna að útrýmingu riðu innan tuttugu ára

Nýverið skrifuðu matvælaráðherra, forstjóri Matvælastofnunar og formaður Bændasamtaka Íslands undir landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu fyrir árið 2044. Áætlunin er unnin í sameiningu af stofnunum þremur og markar tímamót í þeirri baráttu sem átt hefur sér stað undanfarin 50 ár en talið er að sauðfjárriða hafi borist til landsins árið 1878. Drög að áætluninni voru…Lesa meira

true

Minnihlutinn telur borgarstjórn vera að blóðmjólka OR

Meirihluti Borgarráðs Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Einars Þorsteinssonar borgarstjóra þess efnis að hækka arðgreiðslu frá Orkuveitu Reykjavíkur í 6 milljarða króna vegna ársins 2023. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í Borgarstjórn lögðust gegn tillögunni og létu bóka að það væri; „með öllu óábyrgt að gera svo ríka arðgreiðslukröfu á Orkuveituna, ekki síst þar sem…Lesa meira