
Stefna að kílómetragjaldi fyrir öll ökutæki eftir næstu áramót
Fjármálaráðuneytið er með í samráðsgátt svokallað áformaskjal og er hægt að gera athugasemdir til 12. ágúst næstkomandi. Það snýst um að innleitt verði „nýtt, einfaldara og sanngjarnara kerfi,“ eins og það er orðað, þar sem greitt verður almennt kílómetragjald á ökutæki í stað sértækra gjalda á bensín og olíu. Markmiðið er að tryggja sjálfbæra fjármögnun öruggra og greiðra vegasamgangna um allt land samhliða orkuskiptum til framtíðar. Fyrsta skrefið í innleiðingunni var lögfest í byrjun þessa árs þegar tekið var upp kílómetragjald fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. Áform um innleiðingu kílómetragjalds fyrir notkun allra annarra ökutækja á vegakerfinu árið 2025 er nú til umsagnar í samráðsgátt.