
Formlegt tilboð hefur borist í eignir Skagans 3X
Helgi Jóhannesson skiptastjóri í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi staðfestir í samtali við Skessuhorn að hópur fjárfesta hafi í gærkveldi lagt inn formlegt tilboð um kaup á öllum eignum og rekstri þrotabúsins. Tilboðið er einnig háð því að fasteignir fáist keyptar. Helgi segir að viðræður á forsendum tilboðsins fari í gang strax eftir helgi og hann muni byrja á að ræða við viðskiptabankann. Þá segir hann að annar hópur fjárfesta, sem hafi áhuga á því sama, hafi einnig lýst yfir áhuga en er þó ekki enn búinn að senda inn formlegt tilboð. Helgi segir að nú fari í gang þríhliða samningaviðræður. Íslandsbanki eigi veð í fasteignum og annar eigandi sé skráður fyrir þeim. Allt þurfi því að ganga upp til að af viðskiptum á forsendum eins eða fleiri tilboða geti orðið. Þá sé aðkoma bæjaryfirvalda á Akranesi einnig nauðsynleg í ljósi þess að menn vilja halda því opnu að fyrirtækið gæti stækkað og þá jafnvel flust annað innan bæjarfélagsins.
Helgi Jóhannesson kvaðst aðspurður afar ánægður með að skriður væri kominn á mögulega sölu eigna Skagans 3X í ljósi þess að stutt er síðan farið var fram á gjaldþrotaskiptin. „Það er alvara í þessu tilboði og öflugir aðilar sem standa á bak við það. Næstu dagar verða því spennandi,“ sagði Helgi. Aðspurður vildi hann ekki á þessu stigi gefa upp hverjir standa á bakvið tilboðið sem komið er.