Við Deildartunguhver í Borgarfirði. Ljósm. or.is

Minnihlutinn telur borgarstjórn vera að blóðmjólka OR

Meirihluti Borgarráðs Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Einars Þorsteinssonar borgarstjóra þess efnis að hækka arðgreiðslu frá Orkuveitu Reykjavíkur í 6 milljarða króna vegna ársins 2023. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í Borgarstjórn lögðust gegn tillögunni og létu bóka að það væri; „með öllu óábyrgt að gera svo ríka arðgreiðslukröfu á Orkuveituna, ekki síst þar sem afkoma liðins árs var undir áætlun. Fyrirhugaðar eru umfangsmiklar og mikilvægar innviðafjárfestingar á vegum Orkuveitusamstæðunnar á næstu árum. Það er óforsvaranlegt af borgaryfirvöldum að blóðmjólka innviðafyrirtækin með þessum hætti, til þess eins að plástra óábyrgan rekstur borgarinnar.“

Minnihlutinn telur borgarstjórn vera að blóðmjólka OR - Skessuhorn