
Eigendur og starfmenn TÞ, f.v.: Ragnheiður Jónasdóttir, Alexander Eiríksson, Eiríkur Eiríksson og Einar Jónsson. Ljósm. frá október 2004/mm
Gamla myndin – Tölvuþjónustan flutti sig um set
Það er oft fróðlegt að glugga í gamlar myndir í safni Skessuhorns. Í október 2004, fyrir næstum 20 árum, flutti Tölvuþjónustun á Akranesi í nýtt og sérhæft tölvusetur og rúmgóða tölvuverslun við Esjubraut 49 á Akranesi. Grípum niður í fréttina: „Húsið er 380 m2 að stærð og skiptist að stærstum hluta í verslun, verkstæði, rúmgóða starfsmannaaðstöðu og hýsingarsal. Húsið er hannað með ströngustu kröfur að leiðarljósi og er skipt upp í öryggissvæði og brunahólf sem varin eru með öryggiskerfi, brunaviðvörunarkerfi, aðgangskerfi og myndavélum. Sérstök áhersla var lögð á hýsingarsalinn við hönnun hússins og uppfyllir hann allar ströngustu kröfur sem gerðar eru til slíkra rýma í dag.“