
Fjárrekstur af fjalli. Ljósm. mm
Stefna að útrýmingu riðu innan tuttugu ára
Nýverið skrifuðu matvælaráðherra, forstjóri Matvælastofnunar og formaður Bændasamtaka Íslands undir landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu fyrir árið 2044. Áætlunin er unnin í sameiningu af stofnunum þremur og markar tímamót í þeirri baráttu sem átt hefur sér stað undanfarin 50 ár en talið er að sauðfjárriða hafi borist til landsins árið 1878. Drög að áætluninni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í maí í vor og bárust alls 17 umsagnir frá hagaðilum.