Fréttir

true

Gular viðvaranir vegna hvassviðris og úrkomu

Í dag og á morgun eru í gildi gular viðvaranir um vestanvert landið. Frá miðnætti í kvöld og fram til 19 á laugardag er spáin fyrir Faxaflóasvæðið þannig: „Sunnan 8-15 m/s og talsverð eða mikil rigning, einkum á Snæfellsnesi og á Mýrum. Ár og lækir munu vaxa mikið og geta orðið erfiðar yfirferðar, en einnig…Lesa meira

true

Skallagrímur náði mikilvægu stigi í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti KÁ frá Hafnarfirði í 4. deild karla í knattspyrnu í gær. Töluverð rigning var á Borgarfjarðarsvæðinu og Skallagrímsvöllur nokkuð blautur þegar leikurinn fór af stað. Skallagrímur mættu mun grimmari til leiks og nældu í vítaspyrna strax á 4. mínútu leiksins. Framherjinn Sölvi Snorrason steig upp til að taka vítið og skoraði…Lesa meira

true

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Heiðarskóla

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar frá og með ágúst næstkomandi og til ársins 2027. „Samþykktin er gerð með vísan til ákvörðunar Alþingis á breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga þar sem gert er ráð fyrir að við tekjur Jöfnunarsjóðs bætist, á árunum 2024-2027, árlegt framlag úr ríkissjóði sem Jöfnunarsjóður úthlutar til…Lesa meira

true

Breytingar á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar

Skipulagsstofnun staðfesti nýverið breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar vegna verslunar og þjónustu á Framnesi og breytingar á hafnarsvæði. Í breytingunni felst að hluta athafnasvæði AT-1 (sjá mynd) í Grundarfirði er breytt í verslunar- og þjónustusvæði VÞ-3 ásamt breytingum á skipulagsákvæðum. Gert er ráð fyrir stækkun á hafnarsvæði H-2 með landfyllingum ásamt breyttum skipulagsákvæðum hafnarsvæða H-2 og…Lesa meira

true

Skallagrímsstelpur náðum góðum árangri á Eurobasket

Tvö Skallagrímslið í körfubolta voru skráð til leiks á Eurobasket á Lloret de Mar á Spáni í síðustu viku. Stelpurnar lögðu af stað til Spánar 1. júlí en um er að ræða stelpur fæddar 2009, 2010 og 2011. Alls fóru 16 stelpur úr Skallagrími út til keppni við jafnaldra sína víðsvegar úr Evrópu, meðal annars…Lesa meira

true

Fyrrum Akraborg og nú Sæbjörg 50 ára

Þess er nú minnst að liðin eru fimmtíu ár frá því fyrrum Akraborg og nú skólaskipið Sæbjörg var smíðað. Á vef Landsbjargar er frásögn um skipið og sögu þess. Gripið er niður í hana: Það var mikið um dýrðir 8. júlí 1974 í höfninni í Los Cristianos á Tenerife þegar skipið hóf siglingar á nýrri…Lesa meira

true

Ráðuneytið hafnar beiðni Landsnets um raflínunefnd

Innviðaráðuneytið hefur hafnað beiðni Landsnets frá því 6. mars síðastliðinn um að skipuð verði sérstök raflínunefnd vegna Holtavörðulínu 1. Slík nefnd hefði þann tilgang að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag fyrir framkvæmd í flutningskerfi raforku sem nái til tveggja eða fleiri sveitarfélaga og afgreiða umsóknir um framkvæmdaleyfi fyrir henni. Fyrirhuguð Holtavörðulína 1 nær yfir fjögur…Lesa meira

true

Meðalumferð á dag í júnímánuði

Vegagerðin gaf nýverið út upplýsingar um meðalumferð á nokkrum lykil-teljurum um hringveg Íslands. Á Vesturlandi eru nokkrir lykil-teljarar en einnig eru teljarar á helstu stofnvegum svæðisins. Umferðartölur frá 2023 og 2024 standa nokkuð í stað en helstu tölur eru þessar: Hringvegur um Hvalfjarðargöng: Meðalumferð á dag 10.589 bílar. Hringvegur um Hafnarfjall: Meðalumferð á dag 7.246…Lesa meira

true

Ísak Birkir kominn í undanúrslit á HM í keilu

Þessa dagana fer fram heimsmeistaramót í keilu fyrir leikmenn 21 árs og yngri. Spilað er í Suður-Kóreu og koma keppendur frá 39 löndum. Mót þetta er nú haldið í 17. skipti en það var síðast í Helsingborg í Svíþjóð árið 2022. Í einstaklingskeppni á mótinu er spilað í þremur riðlum og 16 bestu komast áfram…Lesa meira

true

Langstærsta pílumót sem haldið hefur verið á Akranesi

Irish Open mótið í 501 tvímenningi í pílukasti fór fram í Íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum fimmtudaginn 4. júlí. Alls mættu 37 lið til leiks sem er næstum tvöföldun frá síðasta ári. Margir af bestu pílukösturum landsins tóku þátt sem og fólk sem hefur aldrei tekið þátt í pílumóti áður. Mótið tókst vel en því stýrði Ingibjörg…Lesa meira