
Gular viðvaranir vegna hvassviðris og úrkomu
Í dag og á morgun eru í gildi gular viðvaranir um vestanvert landið. Frá miðnætti í kvöld og fram til 19 á laugardag er spáin fyrir Faxaflóasvæðið þannig: „Sunnan 8-15 m/s og talsverð eða mikil rigning, einkum á Snæfellsnesi og á Mýrum. Ár og lækir munu vaxa mikið og geta orðið erfiðar yfirferðar, en einnig aukast líkur á aurskriðum og grjóthruni. Fólk er því hvatt til að forðast varasöm vöð og brattar fjallshlíðar.
Á spásvæðinu Breiðafirði er tvískipt gul viðvörun. Í dag frá klukkan 9 til 19 verður sunnan 10-18 m/s, en hvassast vestantil með vindhviður að 30 m/s. Varasamt ferðaveður, sérstaklega fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Frá miðnætti og til klukkan 8 á sunnudagmorgun er gul viðvörun einnig í gildi við Breiðafjörð: „Sunnan 8-15 m/s og talsverð eða mikil rigning, einkum á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjarðakjálka. Ár og lækir munu vaxa mikið og geta orðið erfiðar yfirferðar, en einnig aukast líkur á aurskriðum og grjóthruni. Fólk er því hvatt til að forðast varasöm vöð og brattar fjallshlíðar.“