
Ráðuneytið hafnar beiðni Landsnets um raflínunefnd
Innviðaráðuneytið hefur hafnað beiðni Landsnets frá því 6. mars síðastliðinn um að skipuð verði sérstök raflínunefnd vegna Holtavörðulínu 1. Slík nefnd hefði þann tilgang að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag fyrir framkvæmd í flutningskerfi raforku sem nái til tveggja eða fleiri sveitarfélaga og afgreiða umsóknir um framkvæmdaleyfi fyrir henni. Fyrirhuguð Holtavörðulína 1 nær yfir fjögur sveitarfélög, þ.e. Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð, Skorradalshrepp og Húnaþing vestra. Fyrirhuguð framkvæmd er 220 kV loftlína, um það bil 91 kílómetri að lengd og mun liggja frá tengivirki á Klafastöðum í Hvalfirði og norður að nýju tengivirki sem verður byggt á Holtavörðuheiði. Tvær línuleiðir eru lagðar til í gegnum Borgarbyggð, önnur að mestu samsíða núverandi byggðalínu en hin nokkru vestar og kölluð Hallarmúlaleið. Verður flutningsgeta nýrrar línu á milli 800 og 900 MW. Áætlað er að framkvæmdir geti hafist árið 2025, en það er þó háð því hversu vel gengur að samþykkja skipulag og um það snýst beiðni Landsnets, að flýta því.