
Svipmynd frá degi umhverfisins í Heiðarskóla síðasta vor.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Heiðarskóla
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar frá og með ágúst næstkomandi og til ársins 2027. „Samþykktin er gerð með vísan til ákvörðunar Alþingis á breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga þar sem gert er ráð fyrir að við tekjur Jöfnunarsjóðs bætist, á árunum 2024-2027, árlegt framlag úr ríkissjóði sem Jöfnunarsjóður úthlutar til þeirra sveitarfélaga sem bjóða öllum nemendum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum. Gert er ráð fyrir að ríkið greiði 75% kostnaðar en framlagið er háð árlegu ríkissjóðsframlagi hverju sinni, kostnaðarmismuninn mun sveitarfélagið bera,“ segir í frétt á heimasíðu sveitarfélagsins.