Skallagrímsstelpur með Karen Mundu Jónsdóttur þjálfara. Ljósm. ht

Skallagrímsstelpur náðum góðum árangri á Eurobasket

Tvö Skallagrímslið í körfubolta voru skráð til leiks á Eurobasket á Lloret de Mar á Spáni í síðustu viku. Stelpurnar lögðu af stað til Spánar 1. júlí en um er að ræða stelpur fæddar 2009, 2010 og 2011. Alls fóru 16 stelpur úr Skallagrími út til keppni við jafnaldra sína víðsvegar úr Evrópu, meðal annars frá Frakklandi, Ísrael, Ítalíu og Spáni. Skallagrímsstelpur sýndu lipra takta gegn sterkum liðum úr Evrópu og mátti sjá bætingu með hverjum leiknum.

Skallagrímsstelpur náðum góðum árangri á Eurobasket - Skessuhorn