
Varað er við vatnavöxtum og hættu á skriðuföllum á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum
Veðurspáin nú gerir ráð fyrir mjög mikilli úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi um helgina. Veðurstofan varar við vatnavöxtum og aukinni skriðuhættu á þessum svæðum. Í kvöld koma skil upp að vestanverðu landinu og gera má ráð fyrir því að það verði samfelld rigning alla helgina.
"Það er ekki algengt að fá svona mikla uppsafnaða úrkomu á þessum tíma árs. Úrkomumagnið og ákefðin sem verður um helgina, sérstaklega á laugardaginn á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi er mjög mikil og því er rétt að vara við vatnavöxtum og aukinni skriðuhættu á þessum stöðum. Leysingar eru til fjalla á norðan- og austanverðu landinu með vatnavöxtum og ekki hægt að útiloka skriðuhættu í fjallshlíðum þar sem snjór er að bráðna.
Nánar á bloggi skriðuvaktar Veðurstofunnar: https://blog.vedur.is/ofanflod/2024/07/12/drog-skriduhaetta-a-vestanverdu-landinu/