Fréttir

true

Systkini frá Tjörn koma fram á tónleikum í Hallgrímskirkju

Næsti viðburður í Sumartónleikaröð Hallgrímskirkju í Saurbæ verður sunnudaginn 14. júlí, kl. 16.00. Það eru systkinin Ösp, Björk og Örn Eldjárn frá Tjörn í Svarfaðardal sem flytja eigin tónlist undir nafninu Blood Harmony. „Samstarf þeirra systkinanna hófst árið 2021 í covid-faraldrinum þegar þau breyttu kjallara heimilisins í tónlistarstúdíó og fóru að vinna nánar með eigin…Lesa meira

true

Listsýningin Lúpínufífl í Landsbankahúsinu

Ungmenni á aldrinum 14 ára til 17 ára standa fyrir listsýningunni Lúpínufífl í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi. Sýningin er einungis opin í dag milli klukkan 13 og 15. Alls voru 18 unglingar sem tóku þátt í listsýningunni. Eins og nafn hennar gefur til kynna eru þar til sýnis og sölu verk unglinga um íslenska náttúru…Lesa meira

true

Stærsti dagurinn í höfninni þetta sumarið – myndasyrpa

Það var mikill erill í Grundarfirði mánudaginn 8. júlí. Þá voru skipin Sky Princess og Sirena mætt í morgunsárið til að hleypa farþegum sínum í land. Sky Princess lá við ankeri en Sirena lagðist að bryggju. Sky Princess getur tekið 3.660 farþega og er með 1.346 í áhöfn. Sirena er talsvert minna eða 670 farþega…Lesa meira

true

Vestlendingar á Norðurlandamóti

Norðurlandamót U-16 hjá stúlkum og drengjum í körfubolta hófst miðvikudaginn 3. júlí í Kisakallio í Finnlandi og lauk nú á mánudaginn. Í U16 stúlknaliði Íslands voru m.a. Adda Sigríður Ásmundsdóttir úr Snæfelli en í U16 drengja liði Íslands voru tveir vestlenskir drengir, þeir Sturla Böðvarsson úr Snæfelli og Jón Árni Gylfason úr Skallagrími. U16 stúlknaliðið…Lesa meira

true

Vann flugmiða til Írlands og birgðir af súkkulaði

Eins og á öllum Írskum dögum á Akranesi fram til þessa fór fram keppnin um rauðhærðasta Íslendinginn. Að þessu sinni bar sigur úr býtum hin tíu ára gamla Björk Michaelsdóttir. Sjálf býr hún í Danmörku ásamt fjölskyldu sinni en ákvað síðasta sumar að taka þátt í keppninni ef hún væri stödd í fríi hér á…Lesa meira

true

Kári tryggir stöðu sína á toppi þriðju deildar

Káramenn frá Akranesi unnu öruggan sigur gegn Árbæingum 3:0 í Akraneshöllinni í gær. Með sigrinum styrktu þeir stöðu sína á toppi 3. deildar og eru nú sex stigum frá liðinu í 3. sæti, sem er Árbær. Káramenn byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu fyrsta markið strax á þriðju mínútu leiksins og var þar að verki…Lesa meira

true

Heima í Hólmi er ný tónlistarhátíð í Stykkishólmi

Rætt við Hjördísi Pálsdóttur skipuleggjanda hátíðarinnar Heima í Hólmi tónlistarhátíð verður haldin í Stykkishólmi dagana 12. -13. júlí næstkomandi. Tónleikar verða haldnir við heimahús, í gömlu verbúðinni, Vatnasafninu og Norska húsinu. Blaðamaður Skessuhorns hitti Hjördísi Pálsdóttur að máli en hún hefur verið öflug í því að skapa og skipuleggja hátíðir í Stykkishólmi. Sex hátíðir það…Lesa meira

true

Gott Landsmót hestamanna að baki

Landsmót hestamanna fór fram í Víðidalnum í Reykjavík í síðustu viku og lauk á sunnudaginn. Veðrið lék við mótsgesti, knapa og hross. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni áttu Vestlendingar sína fulltrúa á mótinu, þótt kvótinn hafi reyndar ekki verið fylltur. Af einstökum árangri þeirra stendur upp úr sigur Jakobs Svavars Sigurðssonar úr Dreyra…Lesa meira

true

Blaðaútgáfan í sumar

Nú í júlí verður Skessuhorn gefið út og prentað fjóra fyrstu miðvikudaga mánaðarins. Eftir útgáfu blaðsins í dag eru tvö blöð eftir í mánuðinum. Eftir blaðið sem kemur út 24. júlí fer starfsfólk í tveggja vikna sumarleyfi. Það koma því EKKI út blöð miðvikudagana 31. júlí og 7. ágúst. Starfsfólk kemur úr sumarleyfi 7. ágúst…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi í kvöld og nótt

Seint í kvöld og fram á morgundaginn er í gildi gul viðvörun fyrir Breiðafjarðarsvæðið, einkum þó norðanvert Snæfellsnes. Þar gengur í suðvestan 13-20 m/s og má búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Ástæða…Lesa meira