Fréttir

true

Sigurjón Logi valinn bestur hjá Kára

Káramenn héldu lokahóf með ÍA á laugardagskvöldið á Jaðarsbökkum þar sem menn fögnuðu frábæru sumri sem endaði með sigri Kára í 3. deild. Leikmenn og þjálfarar völdu besta og efnilegasta leikmann sumarsins. Besti leikmaður Kára var valinn Sigurjón Logi Bergþórsson, efnilegasti leikmaðurinn var Arnór Valur Ágústsson og Sigurjón Logi varð markahæsti leikmaður Kára með 12…Lesa meira

true

Einar lyfti 240 kg í bekkpressu

Íslandsmeistaramót í bekkpressu með búnaði fór fram um helgina í húsakynnum Breiðabliks. Alls luku 12 þátttakendur keppni. Einar Örn Guðnason keppti fyrir hönd Kraftlyftingafélags Akranes og varð hann Íslandsmeistari í -120 kg flokki karla með lyftu upp á 240 kg. Einar á fyrir tvö Íslandsmet sem hann setti árið 2018, þá í -105 kg flokki…Lesa meira

true

Miðflokkur mælist langstærstur í Norðvesturkjördæmi

Samkvæmt könnun Maskínu sem birt var í dag um fylgi stjórnmálaflokka á landsvísu er Samfylking stærsti flokkur landsins með 22,2% fylgi. Viðreisn mælist nú næststærsti flokkurinn með 16,2%, litlu meira en Miðflokkurinn sem fær 15,9%. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með rétt tæp 14% atkvæða sem er mjög svipuð niðurstaða og í síðustu könnunum. Flokkur fólksins tekur…Lesa meira

true

Guðmundur Hrafn og Jónína Björg fyrir Sósíalista

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, verður oddviti Sósíalistaflokksins í Norðvesturkjördæmi í þingkosningum 30. nóvember. Félagsfundur Sósíalistaflokksins samþykkti í gær 2.-5. sæti í kjördæminu. Í öðru sæti verður Jónína Björg Magnúsdóttir, fiskverkakona á Akranesi, en við síðustu alþingiskosningar skipaði hún annað sætið á lista Samfylkingar í kjördæminu. Í þriðja sæti er Ævar Kjartansson útvarpsmaður. „Það er…Lesa meira

true

Snæfell vann öruggan sigur á Keflavík b

Keflavík b og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og var viðureignin í Blue-höllinni í Reykjanesbæ. Jafnt var 4:4 eftir tæpar þrjár mínútur þegar gestirnir gáfu í og náðu 14-4 áhlaupi þar sem miðherjinn Carlotta Ellenrider fór á kostum sem þýddi að staðan var 8:18 fyrir Snæfelli eftir fyrsta leikhluta.…Lesa meira

true

Snæfell tapaði á heimavelli

Snæfell í Stykkishólmi tók á móti Sindra frá Höfn í Hornafirði í fjórðu umferð 1. deildar karla í körfubolta á föstudaginn. Snæfell var búið að vinna einn sigur í deildinni á meðan gestirnir höfðu unnið tvo. Liðin byrjuðu bæði með harðan varnarleik en þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta hófu gestirnir áhlaup.…Lesa meira

true

ÍA með stórsigur í Borgarnesi

Skallagrímur mætti ÍA á föstudaginn í fjórðu umferð 1. deildar karla í körfubolta. Bæði lið voru með tvo sigurleiki og einn tapleik í fyrstu þremur umferðunum en nokkuð er um meiðsli í herbúðum Skallagríms, en Almar Orri Kristinsson, Ragnar Magni Sigurjónsson, Bergþór Ríkharðsson og Jure Boban eru allir meiddir. Mikill hiti var í upphafi leiks…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar bátur strandaði í Súgandafirði í morgun

Klukkan sex í morgun voru björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum kallaðar út á hæsta forgangi vegna fiskibáts sem hafði strandað utarlega í Súgandafirði. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að björgunarbátarnir Stella frá Flateyri, Kobbi Láka frá Bolungarvík og björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði héldu þegar á staðinn, ásamt björgunarsveitinni Björg á Suðureyri, sem sendi björgunarfólk…Lesa meira

true

Ekki góður endir hjá Skagamönnum í Bestu deildinni

Valur og ÍA mættust í síðasta leik tímabilsins í Bestu deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á N1-vellinum á Hlíðarenda. Valsmönnum nægði jafntefli í leiknum til að hreppa Evrópusæti á meðan Skagamenn voru líklegast enn að jafna sig eftir viðureignina gegn Víkingi í síðustu umferð. Heimamenn í Val komust í tveggja marka…Lesa meira

true

Fjölmenni kom saman og minntist Hallgríms Péturssonar

Um nýliðna helgi var þess minnst að 350 ár eru frá andláti séra Hallgríms Péturssonar prests og sálmaskálds sem lengst þjónaði við kirkjuna í Saurbæ. Í ljósi þess að fæðingardagur Hallgríms er ekki þekktur, en hins vegar dánardagur hans 27. október, er nú stefnt að því framvegis að minnast Hallgríms og Guðríðar konu hans sem…Lesa meira