Fréttir

true

Pétur Snær Íslandsmeistari í rúningi

Sauðfjárbændur í Dölum gerðu sér dagamun í lok sláturtíðar – myndasyrpa Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) fór fram um liðna helgi. Viðburðurinn er uppskeruhátíð bænda í héraðinu og naut góðrar aðsóknar. Venju samkvæmt voru haldnar lambhrútasýningar í báðum varnarhólfum sýslunnar. Á föstudagskvöld komu saman lambhrútar úr Suðurdölum í Hlíð í Hörðudal þar sem margt…Lesa meira

true

Gunnar heilsaði upp á forsetann

Síðastliðinn sunnudag fór hann Gunnar Mánason með afa sínum og ömmu í messu í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Eftir athöfnina var gestum boðið í kirkjukaffi í Vatnaskógi. Þangað mætti Halla Tómasdóttir forseti Íslands ásamt öðrum gestum. Heilsaði hún upp á Gunnar sem þarna situr fyrir á mynd hjá Elmari afa.Lesa meira

true

Loftbyssa fannst í bifreið

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi voru höfð afskipti af um 40 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Þrír ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og er hann einnig grunaður um brot á vopnalögum eftir að loftbyssa fannst í fórum hans. Einnig…Lesa meira

true

Lokahóf Knattspyrnufélags ÍA – Viktor og Madison valin best

Viktor Jónsson og Madison Brooke Scwartzenberger voru valin bestu leikmenn meistaraflokka ÍA á lokahófi félagsins sem fram fór á laugardaginn á Jaðarsbökkum. Bestu ungu leikmenn meistaraflokks voru valin þau Hinrik Harðarson og Birna Rún Þórólfsdóttir. Fram kemur á FB síðu KFÍA að Madison kom til félagsins í byrjun leiktíðar úr bandaríska háskólaboltanum og smellpassaði inn…Lesa meira

true

Bókmenntakvöld haldið á Bókasafni Akraness

Í gærkvöldi komu sex rithöfundar í heimsókn á Bókasafn Akraness og lásu upp úr nýútkomnum verkum sínum fyrir nánast fullu húsi. Yfirskrift kvöldsins var Þrír plús þrír eru sextíu og er Bókmenntakvöldið orðið fastur liður á Vökudögum. Það hefur skipað sér fastan sess hjá mörgum síðastliðin ár en það var nú haldið í ellefta sinn.…Lesa meira

true

Vel heppnað Westside í Borgarnesi

West Side er íþróttakeppni og ball sem árlega er haldið af nemendafélögum allra framhaldsskóla á Vesturlandi; Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi, Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Í ár eru 15 ár síðan fyrsta West Side keppnin fór fram en keppnin í ár var haldin í Borgarnesi. Nemendur hófu daginn á íþróttakeppni í…Lesa meira

true

Vörður tryggingar opnar í Stykkishólmi

Vörður tryggingar opnar nýja þjónustuskrifstofu í Stykkishólmi mánudaginn 4. nóvember. Þjónustuskrifstofan verður staðsett í útibúi Arion banka á Aðalgötu 24 og verður því hægt að sækja sér bæði trygginga- og bankaþjónustu á sama stað. „Opnunin í Stykkishólmi er liður í þeirri vegferð Varðar að vera með þjónustuskrifstofur víða um land í samstarfi við Arion svo…Lesa meira

true

Vel tókst til á Norðurljósahátíð í Stykkishólmi

Norðurljósahátíðin fór fram í Stykkishólmi um síðustu helgi og heppnaðist hún vel og margt var um manninn í bænum. Hjördís Pálsdóttir, ein af skipuleggjendum hátíðarinnar, segir að sýningar hafi verið víða um bæinn. Á setningarathöfn hátíðarinnar voru veittar viðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista. „Það er bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms sem velur hver hlýtur viðurkenningu…Lesa meira

true

Erlend netverslun Íslendinga í hæstu hæðum

Rannsóknasetur verstlunarinnar hefur birt uppfærðan netverslunarvísi fyrir erlenda netverslun Íslendinga í september. Sýna tölur að það sem af er ári hafa Íslendingar eytt ríflega 27 milljörðum króna í erlendar netverslanir. Þetta er veruleg aukning frá 19 milljörðum króna á sama tímabili í fyrra. „Ef þessi þróun heldur áfram má gera ráð fyrir að heildarverslun Íslendinga…Lesa meira

true

Þrír vilja í Reykholt

Starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli í Borgarfirði var auglýst laust til umsóknar í haust. Gert er ráð fyrir að nýr prestur geti hafið störf 1. desember. Þrjár umsóknir bárust. Tveir umsækjenda óskuðu nafnleyndar, en María Guðrúnar Ágústsdóttir sóknarprestur í Fossvogsprestakalli var þriðji umsækjandinn.Lesa meira