Fréttir

true

Banna lagningu öðrum megin í þremur götum í Jörundarholti

Ábendingar hafa borist um að í þröngum götum í Jörundarholti á Akranesi sé bifreiðum lagt upp á gangstéttir. Með slíkri lagningu beggja vegna getur akbraut fyrir bílaumferð orðið mjög þröng. Afleiðingin er hætta fyrir gangandi og óþægindi fyrir akandi umferð. Með því að banna lagningu öðrum megin í götum er tryggð opin akbraut um götuna.…Lesa meira

true

Nýr þjónustufulltrúi í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Björg Viktoría Guðmundsdóttir hefur verið ráðin þjónustufulltrúi í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hún er með BSc í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og fjallaði lokaverkefni hennar um umhverfisvottað ferðaþjónustusvæði á Snæfellsnesi. Björg hefur sinnt fjölbreyttum störfum í gegnum árin, þar á meðal verið afgreiðslustjóri Póstsins í Snæfellsbæ, skrifstofustjóri í Smiðjunni Fönix ásamt ýmsum þjónustustörfum en megin hlutverk þjónustufulltrúa…Lesa meira

true

Skagamenn unnu stórsigur á Þór

ÍA og Þór Akureyri mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í nýuppgerða íþróttahúsinu við Vesturgötu. Vel var mætt á leikinn eða um 200 manns og mikil stemning í húsinu. Gestirnir að norðan settu niður fyrstu fjögur stigin en heimamenn fóru síðan í gang og voru komnir með örugga forystu,…Lesa meira

true

Naglbítur þegar Snæfell heimsótti Selfoss

Snæfell frá Stykkishólmi heimsótti Selfoss í þriðju umferð 1. deildar karla í körfubolta á föstudaginn. Leikurinn var hnífjafn í fyrri hálfleik en heimamenn á Selfossi náðu ágætis áhlaupi í enda fyrri hálfleiks og gengu liðin til búningsklefa í stöðunni, 50-45 fyrir Selfossi. Áfram var jafnræði með liðunum í seinni hálfleik en heimamenn þó skrefinu framar.…Lesa meira

true

Evrópudraumur ÍA úr sögunni eftir ótrúlegar lokamínútur

ÍA og Víkingur R. mættust í næstsíðustu umferð efri helmings Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Elkem vellinum á Akranesi. Skagamenn þurftu þrjú stig og sigur til að eiga möguleika á sæti í Evrópu og sömuleiðis að treysta á að Valur misstigi sig á móti FH. Gestirnir eru í mikilli…Lesa meira

true

Skallagrímur með öflugan útisigur gegn Sindra

Skallagrímsmenn í Borgarnesi fóru til Hafnar í Hornafirði á föstudaginn og léku gegn heimamönnum í Sindra í þriðju umferð 1. deildar karla í körfubolta. Níu leikmenn frá Skallagrími ásamt fylgdarliði voru mættir en nýi bandaríski leikmaður liðsins, Ishmael Sanders, var kominn með leikheimild og lék því í fyrsta sinn í búningi Skallagríms. Liðin skiptust á…Lesa meira

true

Grænfánaskólar hittast og miðla þekkingu

Grænfáninn verður með landshlutafund fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og leikskóla á Vesturlandi í Varmalandi dagana 22.-23. október. Boðað er til slíkra funda annað hvert ár en þeir eru haldnir í fimm landshlutum. Grænfánaverkefnið miðar að því að leiða skóla í faglegri vinnu með sjálfbærni að leiðarljósi. Verkefnið hefur verið nefnt af umhverfisnefnd Sameinuðu þjóðanna sem helsta…Lesa meira

true

Íbúafundur Dalaauðs var haldinn í Búðardal

Vel heppnaður íbúafundur var haldinn í tengslum við verkefnið DalaAuð í Dalabyggð síðastliðinn fimmtudag. DalaAuður er samstarfsverkefni Dalabyggðar, SSV og Byggðastofnunar og er undir hatti brothættra byggða. Árlega eru haldnir íbúafundir í tengslum við verkefnið og gefst íbúum þá kost á að ræða markmið verkefnisins, setja hugmyndir á blað og stilla saman strengi. Fundurinn var…Lesa meira

true

Kjarrá og hestasveinarnir á Víghól

Út er komin bókin Kjarrá og síðustu hestasveinarnir á Víghól. Höfundar hennar eru Arnar Sigurjónsson, Einar Sigurjónsson og Stefán Þórarinsson. Í bókinni er fjallað um veru og störf höfunda í Fjallveiðinni í Kjarrá, sem er efsti hluti Þverár í Borgafirði. Fjallað er um hesta, laxveiði, veiðimenn og náttúruna í heiðalöndum við ána. „Bókin er óður…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 22. október, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira