
Íbúafundurinn var haldinn í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Ljósm. LG.
Íbúafundur Dalaauðs var haldinn í Búðardal
Vel heppnaður íbúafundur var haldinn í tengslum við verkefnið DalaAuð í Dalabyggð síðastliðinn fimmtudag. DalaAuður er samstarfsverkefni Dalabyggðar, SSV og Byggðastofnunar og er undir hatti brothættra byggða. Árlega eru haldnir íbúafundir í tengslum við verkefnið og gefst íbúum þá kost á að ræða markmið verkefnisins, setja hugmyndir á blað og stilla saman strengi. Fundurinn var haldinn í Búðardal og þótti vel heppnaður.