
Forsíða bókarinnar.
Kjarrá og hestasveinarnir á Víghól
Út er komin bókin Kjarrá og síðustu hestasveinarnir á Víghól. Höfundar hennar eru Arnar Sigurjónsson, Einar Sigurjónsson og Stefán Þórarinsson. Í bókinni er fjallað um veru og störf höfunda í Fjallveiðinni í Kjarrá, sem er efsti hluti Þverár í Borgafirði. Fjallað er um hesta, laxveiði, veiðimenn og náttúruna í heiðalöndum við ána. „Bókin er óður til árinnar, ástríðufullra laxveiðimanna úr öllum áttum, hestanna sem gegndu sínu upprunalega hlutverki í tilveru sinni á Íslandi, til sveitarinnar og fólksins sem þar bjó og hinnar undursamlegu óspilltu náttúru heiðanna sem fæddu af sér ána,“ segir í kynningu.