
Vorið 2010 fékk Varmalandsskóli í Borgarfirði að flagga hinum eftirsóknarverða Grænfána eftir tveggja ára vinnu nemenda og starfsfólks við að ná settum markmiðum í umhverfismálum. Myndin er frá þeim viðburði úr safni Skessuhorns, en þess má geta að unga fólkið á þessari mynd er um þrítugt í dag.
Grænfánaskólar hittast og miðla þekkingu
Grænfáninn verður með landshlutafund fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og leikskóla á Vesturlandi í Varmalandi dagana 22.-23. október. Boðað er til slíkra funda annað hvert ár en þeir eru haldnir í fimm landshlutum. Grænfánaverkefnið miðar að því að leiða skóla í faglegri vinnu með sjálfbærni að leiðarljósi. Verkefnið hefur verið nefnt af umhverfisnefnd Sameinuðu þjóðanna sem helsta tæki til eflingar á menntun til sjálfbærni.