
Banna lagningu öðrum megin í þremur götum í Jörundarholti
Ábendingar hafa borist um að í þröngum götum í Jörundarholti á Akranesi sé bifreiðum lagt upp á gangstéttir. Með slíkri lagningu beggja vegna getur akbraut fyrir bílaumferð orðið mjög þröng. Afleiðingin er hætta fyrir gangandi og óþægindi fyrir akandi umferð. Með því að banna lagningu öðrum megin í götum er tryggð opin akbraut um götuna.