Fréttir

true

Snæfell tapaði stórt fyrir Njarðvík

Snæfell tók á móti Njarðvík í Subway deild kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi. Fyrir leik var staða liðanna nokkuð ólík í deildinni en Njarðvíkurkonur voru með 22 stig í öðru sætinu á meðan Snæfell var á botninum ásamt Fjölni með fjögur stig. Heimakonur hófu leik ansi vel og staðan 9:2 fyrir Snæfelli eftir…Lesa meira

true

Störf auglýst í Skessuhorni vikunnar

Í Skessuhorni sem kom út í dag eru nokkur störf auglýst laus til umsóknar. Bæði er um að ræða störf við afleysingar næsta sumar og fastar stöður í fyrirtækjum. Áhugasamir eru hvattir til að fletta þeim upp. Meðal starfa sem auglýst eru: Faxaflóahafnir leita að afleysingafólki til starfa í sumar við hafnargæslu á Grundartanga Sumarstörf…Lesa meira

true

Sunnan hvellur gengur yfir í nótt og fyrramálið

Athygli er vakin á sunnanhvelli sem gengur yfir með slagviðri og hlýindum í nótt og á morgun. Lægð mun ganga hratt yfir landið og fylgja henni mjög varasamir sviptivindar. Suðvestan- og vestanlands verður veður verst á milli kl. 4 og 7 í nótt og fyrramálið. Á Vestfjörðum og vestan til á Norðurlandi verður hvassast frá…Lesa meira

true

Rúm sjö prósent hafa ekki enn skráð kílómetrastöðu bíls

Rétt tæplega 93% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu. Hefur kílómetrastaða ríflega 47 þúsund bíla verið skráð. Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og höfðu eigendur og umráðaaðilar ákveðinn frest til að skrá kílómetrastöðuna. Samkvæmt hinum nýju lögum verður…Lesa meira

true

Leggja til að 18 ára geti boðið sig fram til forseta Íslands

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir er fyrsti flutningsmaður að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga þar sem lagt er til að 18 ára og eldri geti boðið sem fram til embættis forseta Íslands. Núverandi lágmarksaldur forsetaframbjóðenda er 35 ár. Í fyrstu grein frumvarpsins segir: „Kjörgengur til forseta er hver maður, sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu.“ Auk…Lesa meira

true

Bæjarstjórn lýsir þungum áhyggjum af stöðu orkumála

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir þungum áhyggjum yfir stöðu raforkumála og þeirri stöðu sem frekari orkuöflun er í. Í ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar í gær segir að staðreyndin sé sú að skerðing á orku, og skortur á henni, sé farin að hafa áhrif á fyrirtæki sem veita hundruðum íbúa Akraness atvinnu og setur…Lesa meira

true

Blóm fá mann til að brosa

Um síðustu áramót tók Skagamaðurinn Dagur Jóhannsson við rekstri elstu blómabúðar landsins, Blómatorginu á horni Hringbrautar og Birkimels í Reykjavík, en hún er staðsett við hliðina á Þjóðarbókhlöðunni. Dagur sem er 33 ára hefur unnið við ýmislegt á lífsleiðinni en er með litla reynslu af rekstri og hvað þá af rekstri heillar blómabúðar. Í færslu…Lesa meira

true

Einyrkjar hittust í kaffi á Breið og hvítlauksbændur komu við

Breið þróunarfélag við Bárugötu á Akranesi bauð í svokallað einyrkjakaffi sem haldið var í hádeginu síðasta föstudag. Markmiðið var að fá einyrkja í atvinnurekstri eða þá sem starfa einir til að koma í kaffispjall og fá smá félagsskap. Hátt í fjörutíu manns mættu og segir á FB síðu Breiðar þróunarfélags að viðburðurinn hafi verið vel…Lesa meira

true

Fundur í Borgarnesi í kvöld um framtíðarsýn í málefnum innflytjenda

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda. Markmiðið er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samtal og samráð við íbúa, sérstaklega innflytjendur, er mikilvægt í þessari vinnu. Ráðuneytið býður því til samtals hringinn…Lesa meira

true

Klæddu sig upp

Nýstofnað nemendaráð miðstigs í Grunnskóla Grundarfjarðar skipulagði á dögunum Kynjaskiptidag fyrir nemendur á miðstigi. Þá máttu þær stelpur sem vildu taka þátt klæða sig upp eins og strákar og svo öfugt. Eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni þá voru krakkarnir ansi úrræðagóðir og alls óhræddir við að klæða sig eins og hitt…Lesa meira