
Sunnan hvellur gengur yfir í nótt og fyrramálið
Athygli er vakin á sunnanhvelli sem gengur yfir með slagviðri og hlýindum í nótt og á morgun. Lægð mun ganga hratt yfir landið og fylgja henni mjög varasamir sviptivindar. Suðvestan- og vestanlands verður veður verst á milli kl. 4 og 7 í nótt og fyrramálið. Á Vestfjörðum og vestan til á Norðurlandi verður hvassast frá klukkan 6 í fyrramálið og seinna gengur lægðin yfir Norðurland eftir því sem líður á daginn.
Veðurstofan gefur út gula viðvörun. Við Faxaflóa gildir hún frá klukkan 5 í nótt til kl. 15 á morgun. Það verður sunnan 18-25 m/s með snörpum vindhviðum. Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum og ferðaveður verður varasamt. Við Breiðafjörð gildir gul viðvörun frá klukkan 4 í nótt og til kl. 15 á morgun. Þar verður sömuleiðis sunnan- og suðvestan 18-25 m/s með snörpum vindhviðum, hvassast á Snæfellsnesi. Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum. Varasamt ferðaveður.