
Fundur í Borgarnesi í kvöld um framtíðarsýn í málefnum innflytjenda
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda. Markmiðið er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samtal og samráð við íbúa, sérstaklega innflytjendur, er mikilvægt í þessari vinnu. Ráðuneytið býður því til samtals hringinn í kringum landið og eru innflytjendur sérstaklega hvattir til að mæta. Í nóvember voru vel heppnaðir fundir haldnir á Akureyri og Ísafirði og nú heldur samtalið áfram. Starfsfólk ráðuneytisins verður í Borgarnesi síðdegis í dag, miðvikudaginn 24. janúar kl. 17:00-19:00. Fundurinn fer fram í Hjálmakletti og er opinn öllum. Fundurinn verður túlkaður á ensku og pólsku.