
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir alþingismaður. Ljósm. úr safni/sþ
Leggja til að 18 ára geti boðið sig fram til forseta Íslands
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir er fyrsti flutningsmaður að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga þar sem lagt er til að 18 ára og eldri geti boðið sem fram til embættis forseta Íslands. Núverandi lágmarksaldur forsetaframbjóðenda er 35 ár. Í fyrstu grein frumvarpsins segir: „Kjörgengur til forseta er hver maður, sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu.“ Auk Lilju Rannveigar eru flutningsmenn tillögunnar þingmennirnir Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Stefán Vagn Stefánsson og Jóhann Friðrik Friðriksson.