Störf auglýst í Skessuhorni vikunnar

Í Skessuhorni sem kom út í dag eru nokkur störf auglýst laus til umsóknar. Bæði er um að ræða störf við afleysingar næsta sumar og fastar stöður í fyrirtækjum. Áhugasamir eru hvattir til að fletta þeim upp. Meðal starfa sem auglýst eru:

Faxaflóahafnir leita að afleysingafólki til starfa í sumar við hafnargæslu á Grundartanga

Sumarstörf eru auglýst hjá Landsvirkjun; fyrir háskóla-, iðn- og tækninema

Íslandsbanki á Akranesi leitar að kraftmiklum ráðgjafa/gjaldkera í útibú sitt á Akranesi

Vegagerðin auglýsir starf vélamanns í Ólafsvík

Við leikskólann Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum auglýsir Borgarbyggð eftir sérkennslustjóra og öðrum í starf leikskólakennara.

Störf auglýst í Skessuhorni vikunnar - Skessuhorn