„Um 20% af heildaratvinnutekjum íbúa Akraness koma til vegna framleiðslu fyrirtækja á Grundartanga; Norðuráls og Elkem, og skortur á raforku, til skemmri eða lengri tíma, hefur bein áhrif á afkomu íbúa og sveitarfélagsins,“ segir í ályktun bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar. Ljósm. mm

Bæjarstjórn lýsir þungum áhyggjum af stöðu orkumála

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir þungum áhyggjum yfir stöðu raforkumála og þeirri stöðu sem frekari orkuöflun er í. Í ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar í gær segir að staðreyndin sé sú að skerðing á orku, og skortur á henni, sé farin að hafa áhrif á fyrirtæki sem veita hundruðum íbúa Akraness atvinnu og setur störf þeirra og lífsafkomu í hættu. „Um 20% af heildaratvinnutekjum íbúa Akraness koma til vegna framleiðslu fyrirtækja á Grundartanga, Norðuráls og Elkem og skortur á raforku, til skemmri eða lengri tíma, hefur bein áhrif á afkomu íbúa og sveitarfélagsins. Núverandi ástand og horfur geta leitt til tapaðra starfa og minnkandi verðmæta sem leiða af sér samdrátt og lakari lífskjör. Akraneskaupstaður skorar á stjórnvöld að leita nú allra leiða til að styðja við frekari orkuöflun og hraða uppbyggingu á virkjunum og endurbótum á flutningskerfi raforku.“

Bæjarstjórn lýsir þungum áhyggjum af stöðu orkumála - Skessuhorn