Fréttir

true

Hægt að nálgast glænýjan ferskan fisk hjá G.Run

Undanfarna mánuði hefur verið hægt að nálgast glænýjan og ferskan fisk í anddyri fiskvinnslufyrirtækisins G.Run hf í Grundarfirði. Þær Hólmfríður Hildimundardóttir og Rósa Guðmundsdóttir hafa borið hita og þunga af þessari þjónustu frá upphafi. „Við vorum oft búin að ræða þetta innan fyrirtækisins áður en við létum til skarar skríða,“ segir Hólmfríður í stuttu spjalli…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til nýsköpunar í skólastarfi

Mennta- og barnamálaráðuneytið úthlutaði í síðustu viku styrkjum til nýsköpunar- og skólaþróunarverkefna á vettvangi leik-, grunn- og framhaldsskóla auk frístundastarfs. Um nýja tímabundna styrki er að ræða til að innleiða aðgerð-2 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 um aukna skólaþróun um allt land. „Markmið styrkja er að stuðla að öflugri skólaþróun með fjölbreyttum verkefnum sem…Lesa meira

true

Birta þrívíddarlíkan af gosinu eins og það var síðdegis í gær

Landmælingar Íslands og Náttúrufræðistofnun hafa birt þrívíddarlíkön af gossvæðinu norðan við Grindavík. Notað var svokallað myndmælingateymi til að vinna líkanið, sem byggir á myndefni sem var tekið úr flugvél og myndmælt í forritinu Agisoft Metashape. Líkanið var unnið í samstarfi við Almannavarnir og Háskóla Ísland og sýnir gosstöðvarnar eins og þær voru klukkan 16:20 í…Lesa meira

true

Þungatakmörkunum aflétt klukkan 10 í dag

Í ljósi þess að nú hefur kólnað og þornað í veðri hefur Vegagerðin ákveðið að; „þeim sérstöku takmörkunum á ásþunga sem verið hafa í gildi á vegum á Vestfjörðum og Vesturlandi verður aflétt í dag, mánudaginn 15. janúar klukkan 10:00 og Viðauki 1 því í gildi á ný á þeim vegum sem við á.“Lesa meira

true

Upplýsingavefurinn; Að eldast

Upplýsingar um hvað eina sem tengist þjónustu fyrir eldra fólk hér á landi, réttindi þess og heilsueflingu má nú í fyrsta sinn nálgast á einum stað á vefnum island.is undir heitinu: „Að eldast.“ Hingað til hafa upplýsingarnar verið dreifðar hér og þar og gjarnan verið flókið fyrir eldra fólk og aðstandendur þess að nálgast þær.…Lesa meira

true

Söngbræður fylltu Þinghamar að venju

Síðastliðið laugardagskvöld bauð karlakórinn Söngbræður til árlegrar söng- og matarveislu í félagsheimilinu Þinghamri í Borgarfirði. Uppselt var á samkomuna og komust raunar færri að en vildu, þrátt fyrir að þetta sé stærsta félagsheimili héraðsins. Dagskráin hófst og endaði með söng undir stjórn Viðars Guðmundssonar sem kynnti atriðin og fór með gamanmál. Einsöngvarar stigu fram og…Lesa meira

true

Ný gossprunga opnaðist rétt við efstu hús í Grindavík

Nú í hádeginu opnaðis ný gossprunga einungis nokkrum tugum norðan við efstu hús í hinu nýja Hópshverfi í Grindavík. Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur, sagði nú rétt í þessu að Grindavík væri mikið hættusvæði eins og stendur. Kvika sé að finna sér leið upp á yfirborðið sem hafi áhrif á allt svæðið. Meðfylgjandi er skjáskot úr vefmyndavél…Lesa meira

true

Eldgos hófst norðan við Grindavík í morgun

Laust fyrir klukkan átta í morgun hófst eldgos úr um hálfs kílómetra langri gossprungu norðan við Grindavík. Sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir eldgosi og síðla í nótt hófst rýming á Grindavíkurbæ og var henni lokið tímanlega áður en gos hófst. Engum hefur því orðið meint af sökum jarðhræringanna nú. Um klukkan 3 í nótt hófst…Lesa meira

true

Myndir frá aðgerðum í Grindavík í síðustu viku

Eins og kom fram í fréttum á föstudagskvöld tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum þá ákvörðun að hætta leit að manninum sem féll í sprungu í Grindavík á miðvikudagsmorgun. Ekki var talið forsvaranlegt að halda leit áfram við þær aðstæður sem ríktu og stofna þannig fleiri mannslífum í hættu. Í kjölfarið var nafn mannsins sem leitað var…Lesa meira

true

Mundu það helga og háa – vísa sem á erindi við nútímann

Þegar gengið er eftir göngustíg sem liggur frá leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi yfir á Þórðargötu er farið um svæði þar sem ys og þys mannlífsins er víðs fjarri. Stígurinn endar við botnlanga innst í Þórðargötu þaðan sem hægt er að halda áfram göngu gegnum gróskumikinn skógarlund. Eitt aðaleinkenni Borgarness eru holtin og eitt kennileitið á…Lesa meira