Fréttir

true

Loka gámastöðinni á Grímsstöðum

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur ákveðið að leggja til að gámastöðinni á Grímsstöðum í Reykholtsdal verði lokað eins fljótt og kostur er. Þar hefur til fjölda ára verið hægt að losa timbur, járn og drykkjarvöruumbúðir auk almenns sorps. Þessi gámastöð hefur alla tíð verið mjög mikið notuð og því felur lokun hennar í sér skerta…Lesa meira

true

Tveir Vestlendingar í úrslitum Idol í kvöld

Fyrsta úrslitakvöld Idol söngkeppninnar fer fram í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni og verður það sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19. Uppselt er í sal á fyrsta úrslitakvöldið en um 500 manns komast að í salnum og eru örfáir miðar eftir á annað úrslitakvöldið sem fer fram eftir viku. Þema kvöldsins í…Lesa meira

true

Sjósetja í dag nýtt rannsóknaskip Hafró

Nýtt rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar verður sjósett síðdegis í dag í borginni Vigo á Spáni. Skipinu verður gefið nafnið Þórunn Þórðardóttir með formlegum hætti við það tækifæri. Nafnið fær skipið eftir fyrstu íslensku konunni sem var sérfræðimenntuð í hafrannsóknum og miklum frumkvöðli í rannsóknum á smáþörungum í hafinu við Ísland. Áætlað er að nýja rannsóknarskipið verði afhent…Lesa meira

true

Riða greindist í á úr Blöndudal

Fyrr í þessari viku barst Matvælastofnun tilkynning frá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, þess efnis að sýni úr sláturfé hafi reynst jákvætt m.t.t. riðuveiki. Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr þriggja vetra á frá bænum Eiðsstöðum í Blöndudal í Húna- og Skagahólfi. Búrekstur á Eiðsstöðum er sameiginlegur með nágrannabænum Guðlaugsstöðum. Heildarfjöldi kinda…Lesa meira

true

Lagt til að ríkið taki alfarið yfir öflun nýrra hjúkrunarrýma

Fjármála- og efnahagsráðherra ásamt heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að breyta fyrirkomulagi við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili í landinu. Lagt er til að ríkið sjái hér eftir alfarið um öflun húsnæðis undir rekstur hjúkrunarheimila í gegnum leigusamninga við fasteignafélög og aðra sérhæfða aðila á grundvelli útboða. Tillögur starfshóps þessa efnis voru kynntar fyrir ríkisstjórn á dögunum. Markmiðið…Lesa meira

true

Varað við ísingu á vegum síðdegis og í kvöld

Á næsta sólarhring er því að spáð að smám saman kólni í veðri. Vegagerðin bendir á að vegir eru flestir blautir eftir úrkomu síðustu daga og nú þegar kólnar hægt og bítandi í hægum vindi, myndast ísing og lúmsk hálka. Þetta mun gerast framan af degi á fjallvegum og inn til landsins, en við sjávarsíðuna…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir KR

KR og Skallagrímur mættust á Meistaravöllum í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og vann KR sigur í sveiflukenndum leik. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta og liðin skiptust á að ná forystu. Skallagrímur náði að komast sex stigum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir, 13:19, en KR-ingar skoruðu síðustu sex stigin…Lesa meira

true

Ísland hefur leik á EM síðdegis í dag

Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar sinn fyrsta leik á EM 2024 í Þýskalandi í dag. Mótherji dagsins er Serbía en liðin eru í C-riðli ásamt Ungverjalandi og Svartfjallalandi. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. Mikillar eftirvæntingar gætir fyrir þennan fyrsta leik liðsins og jafnframt fyrsta stórleik þess undir stjórn þjálfarans…Lesa meira

true

Héldu upplýsingafund um stöðu Jaðarsbakkaverkefnis

Íbúafundur á vegum bæjarstjórnar Akraness varðandi skipulagsmál á Jaðarsbökkum var haldinn síðasta miðvikudagskvöld í húsnæði Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni á Dalbraut 4. Á fundinum var farið yfir stöðu verkefnisins og það sem framundan er í skipulagsvinnunni, ásamt því að íbúum gafst kostur á að spyrja bæjarfulltrúa út í málið. Haraldur Benediktsson var…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar reiðubúin að endurskoða gjaldskrárhækkanir

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar í gær var lagt fram minnisblað með bókunum þriggja sveitarfélaga; Akraneskaupstaðar, Hrunamannahrepps og Dalvíkurbyggðar, vegna þjóðarsáttar um gerð kjarasamninga til næstu ára. Smám saman fjölgar í þeim hópi sveitarfélaga sem vilja leggja sitt af mörkum og síðast bættist Borgarbyggð við í þann hóp. Bókað var á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar að fylgjast…Lesa meira