
Frá íbúafundinum á Dalbraut. Skjáskot af vef akranes.is
Héldu upplýsingafund um stöðu Jaðarsbakkaverkefnis
Íbúafundur á vegum bæjarstjórnar Akraness varðandi skipulagsmál á Jaðarsbökkum var haldinn síðasta miðvikudagskvöld í húsnæði Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni á Dalbraut 4. Á fundinum var farið yfir stöðu verkefnisins og það sem framundan er í skipulagsvinnunni, ásamt því að íbúum gafst kostur á að spyrja bæjarfulltrúa út í málið.