
Nýja skipið í rennunni nú skömmu áður en það var sjósett síðar í dag. Ljósm. Hafró.
Sjósetja í dag nýtt rannsóknaskip Hafró
Nýtt rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar verður sjósett síðdegis í dag í borginni Vigo á Spáni. Skipinu verður gefið nafnið Þórunn Þórðardóttir með formlegum hætti við það tækifæri. Nafnið fær skipið eftir fyrstu íslensku konunni sem var sérfræðimenntuð í hafrannsóknum og miklum frumkvöðli í rannsóknum á smáþörungum í hafinu við Ísland.