Varað við ísingu á vegum síðdegis og í kvöld

Á næsta sólarhring er því að spáð að smám saman kólni í veðri. Vegagerðin bendir á að vegir eru flestir blautir eftir úrkomu síðustu daga og nú þegar kólnar hægt og bítandi í hægum vindi, myndast ísing og lúmsk hálka. Þetta mun gerast framan af degi á fjallvegum og inn til landsins, en við sjávarsíðuna í kvöld og nótt.

Varað við ísingu á vegum síðdegis og í kvöld - Skessuhorn