Fréttir

true

Ók á bifreið og á hús

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku var tilkynnt um rásandi aksturslag ökumanns. Við afskipti lögreglu reyndist hann í annarlegu ástandi og er grunaður um ölvun við akstur en hann reyndist hafa ekið á að minnsta kosti eina bifreið og hús. Viðkomandi hlaut smávægilega áverka en slys urðu ekki á öðru fólki. Þá var…Lesa meira

true

Breyta húsnæði Prentmets í íbúðir

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðasta þriðjudag var tekin fyrir umsókn lóðarhafa, Lyngháls 1, um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna lóðarinnar Heiðargerði 22 þar sem fyrirtækið Prentmet var áður til húsa. Í breytingunni felst breyting á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og er gert ráð fyrir sex íbúðum á einni hæð í núverandi byggingu. Íbúðir verða frá 42…Lesa meira

true

Formlegar viðræður hafnar um sameiningu tveggja háskóla

Í kjölfar fýsileikagreiningar Háskólans á Akureyri (HA) og Háskólans á Bifröst um aukið samstarf og mögulega sameiningu hafa háskólaráð HA og stjórn Háskólans á Bifröst nú ákveðið að ganga til sameiningarviðræðna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneyti háskólamála. Þar segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fagna niðurstöðu háskólanna sem komi í framhaldi af öflugu samstarfi…Lesa meira

true

Efla eykur þjónustu á Vesturlandi

Verkfræðistofan Efla opnaði formlega um áramótin starfsstöð á Vesturlandi. Orri Jónsson, starfsmaður EFLU á Hvanneyri, verður svæðisstjóri á Vesturlandi. Fyrir er Efla með starfsstöðvar í Reykjanesbæ, á Suðurlandi, Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum. Undanfarin fjögur ár hefur Efla verið með skrifstofu á Hvanneyri og hafa umsvifin á svæðinu aukist jöfnum höndum þann tíma. „Með því að…Lesa meira

true

Skallagrímur auglýsir eftir þjálfara meistaraflokks

Knattspyrnudeild Skallagríms í Borgarnesi er um þessar mundir að auglýsa eftir þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins sem leikur í 4. deild næsta sumar annað árið í röð. Félagið lauk keppni á síðasta tímabili í 8. sæti og stefnan vafalaust að enda ofar á þessu tímabili. Jón Theodór Jónsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar segir að auglýsing hafi verið send…Lesa meira

true

Módelin hans Guðmundar á nýrri sýningu í Safnahúsi

Í dag klukkan 16-18 verður opnun á nýrri sýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar sýnir Guðmundur Stefán Guðmundsson leikfangasafn sitt, en á sýningunni verða um 60 munir. „Ég hef keypt flest þessara tækja í Kaupfélaginu hér í Borgarnesi en einnig hjá Jötunvélum á Selfossi. Mér þykir mjög gaman að safna svona tækjum,“ segir hann…Lesa meira

true

Krossgátan öll

Smávægileg mistök voru gerð við umbrot á krossgátu í Skessuhorni sem kom út í gær. Efst og af hægri hlið skárust tvær línur. Hér að neðan má sjá hana í heild sinni fyrir þá sem vilja ljúka við að leysa hana og senda inn lausn. Krossgáta er birt í Skessuhorni aðra hverja viku. Þeir sem…Lesa meira

true

Gísli var fyrsti Vestlendingur ársins

Í fyrsta tölublaði nýs árs var samantekt um þá sem frá upphafi hafa hlotið sæmdarheitið Vestlendingar ársins í kjöri Skessuhorns. Þau leiðu mistök voru gerð í samantekt þessari að fyrsti titillinn var ómaklega tekinn af Gísla Gíslasyni þáverandi bæjarstjóra á Akranesi og formanni stjórnar Spalar, sem árið 1998 opnaði göng undir Hvalfjörð. Óli Jón Ólason…Lesa meira

true

Mistök gerð við við veitingu viðurkenninga

Þau leiðinlegu mistök urðu þegar verið var að veita viðurkenningar fyrir A-landslið á kjöri Íþróttamanneskju Borgarfjarðar á þrettándanum að það gleymdist að veita Emblu Kristínardóttur viðurkenningu en hún var valin í A-landsliðið í körfuknattleik í haust eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn með Val í vor. Fram kemur á vefsíðu Ungmennasambands Borgarfjarðar að Embla spilaði með…Lesa meira

true

Kaupfélag Skagfirðinga niðurgreiðir lán til bænda til kaupa á mjólkurkvóta

Baldur Helgi Benjamínsson kúabóndi í Eyjafirði og fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda ritar grein í Bændablaðið sem kom út í dag. Þar bendir hann á að við síðasta kvótamarkað með greiðslumark í mjólk hafi ríflega 90% af því greiðslumarki sem skipti um eigendur farið á bú í Skagafirði og í Húnaþingi. Fór hann að velta ástæðunni…Lesa meira