F.v. Óli Jón Ólason, Steinunn Hansdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir og Gísli Gíslason. Ljósm. ge

Gísli var fyrsti Vestlendingur ársins

Í fyrsta tölublaði nýs árs var samantekt um þá sem frá upphafi hafa hlotið sæmdarheitið Vestlendingar ársins í kjöri Skessuhorns. Þau leiðu mistök voru gerð í samantekt þessari að fyrsti titillinn var ómaklega tekinn af Gísla Gíslasyni þáverandi bæjarstjóra á Akranesi og formanni stjórnar Spalar, sem árið 1998 opnaði göng undir Hvalfjörð. Óli Jón Ólason þáverandi hótelstjóri var sagður hafa verið Vestlendingur ársins 1998, en hann varð hins vegar í þriðja sæti í kjörinu ásamt Steinunni Hansdóttur eiginkonu sinni. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra var í öðru sæti og Gísli Gíslason í því fyrsta. Gísli er beðinn velvirðingar á þessu. Meðfylgjandi er mynd af forsíðu síðasta tölublaðsins árið 1998.

Gísli var fyrsti Vestlendingur ársins - Skessuhorn