
Eyfirskar kýr. Sú ógn stafar að þeim líkt og kúm í flestum landshlutum að eigendur þeirra selji kvóta sinn og hætti búskap. Sú hefur vissulega orðið raunin á umliðnum árum eins og Baldur Helgi Benjamínsson bendir á í grein sinni. Ljósm. mm
Kaupfélag Skagfirðinga niðurgreiðir lán til bænda til kaupa á mjólkurkvóta
Baldur Helgi Benjamínsson kúabóndi í Eyjafirði og fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda ritar grein í Bændablaðið sem kom út í dag. Þar bendir hann á að við síðasta kvótamarkað með greiðslumark í mjólk hafi ríflega 90% af því greiðslumarki sem skipti um eigendur farið á bú í Skagafirði og í Húnaþingi. Fór hann að velta ástæðunni fyrir sér og leitaði upplýsinga um málavöxtu. Í ljós hafi komið, það sem Baldri grunaði, að KS væri að niðurgreiða lán til kúabænda á Norðvesturlandi og skapa þannig aðstöðumun sem bændur í öðrum landshlutum geta ekki keppt við. Slíkt skapaði hróplegan aðstöðumun sem stuðli að sundrungu innan greinarinnar.