Heiðargerði 22. Ljósm. vaks

Breyta húsnæði Prentmets í íbúðir

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðasta þriðjudag var tekin fyrir umsókn lóðarhafa, Lyngháls 1, um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna lóðarinnar Heiðargerði 22 þar sem fyrirtækið Prentmet var áður til húsa. Í breytingunni felst breyting á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og er gert ráð fyrir sex íbúðum á einni hæð í núverandi byggingu. Íbúðir verða frá 42 fermetrum til 120 fermetra. Núverandi form útveggja og þak heldur sér en ný klæðning verður sett utan á húsið og breytingar gerðar á gluggum og hurðum.

Breyta húsnæði Prentmets í íbúðir - Skessuhorn