
Formlegar viðræður hafnar um sameiningu tveggja háskóla
Í kjölfar fýsileikagreiningar Háskólans á Akureyri (HA) og Háskólans á Bifröst um aukið samstarf og mögulega sameiningu hafa háskólaráð HA og stjórn Háskólans á Bifröst nú ákveðið að ganga til sameiningarviðræðna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneyti háskólamála. Þar segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fagna niðurstöðu háskólanna sem komi í framhaldi af öflugu samstarfi háskóla. „Með sameiningu þessarar tveggja skóla geti orðið til háskóli sem taki afgerandi forystu í fjarnámi og þjónustu við nemendur um land allt sem kalli eftir sveigjanlegum námsaðferðum. Skólarnir hafa jafnframt hug á að efla rannsóknarhlutverk sitt og ég mun leggja mig fram um að hugmyndir þeirra um öflugan rannsóknarsjóð nýs skóla geti orðið að veruleika,“ segir Áslaug Arna.