
Módelin hans Guðmundar á nýrri sýningu í Safnahúsi
Í dag klukkan 16-18 verður opnun á nýrri sýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar sýnir Guðmundur Stefán Guðmundsson leikfangasafn sitt, en á sýningunni verða um 60 munir. „Ég hef keypt flest þessara tækja í Kaupfélaginu hér í Borgarnesi en einnig hjá Jötunvélum á Selfossi. Mér þykir mjög gaman að safna svona tækjum,“ segir hann og sýnir blaðamanni öflugan traktor með ýtutönn og allskyns búnaði. Undir traktorinn smíðaði Guðmundur sjálfur sérstaka undirtönn og er hann þá alveg eins og stóru vélarnar sem Vegagerðin notar til að ryðja snjó. Þá má finna snjóruðningtæki og endurbætta útgáfu af snjóbíl björgunarsveita. Sumir traktorarnir eru eins og þeir sem voru í sveitinni þegar Guðmundur Stefán var að alast upp en fyrstu tæplega tvo áratugi ævinnar bjó hann ásamt foreldrum sínum í Hvammi í Norðurárdal, en síðan hefur hann búið í Borgarnesi.