
Nýjasta hjúkrunarheimilið á Vesturlandi er í nýuppgerðu og glæsilegu húsnæði við Austurgötu 7 í Stykkishólmi.
Lagt til að ríkið taki alfarið yfir öflun nýrra hjúkrunarrýma
Fjármála- og efnahagsráðherra ásamt heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að breyta fyrirkomulagi við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili í landinu. Lagt er til að ríkið sjái hér eftir alfarið um öflun húsnæðis undir rekstur hjúkrunarheimila í gegnum leigusamninga við fasteignafélög og aðra sérhæfða aðila á grundvelli útboða. Tillögur starfshóps þessa efnis voru kynntar fyrir ríkisstjórn á dögunum. Markmiðið er að auka hagkvæmni, sérhæfingu og skilvirkni á þessu sviði og stuðla að því að framboð hjúkrunarrýma haldist í hendur við vaxandi þörf á komandi árum.