
: Lýsingin á bak við skjöldinn nýtur sín vel í skammdegismyrkrinu. Ljósm. gj
Mundu það helga og háa – vísa sem á erindi við nútímann
Þegar gengið er eftir göngustíg sem liggur frá leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi yfir á Þórðargötu er farið um svæði þar sem ys og þys mannlífsins er víðs fjarri. Stígurinn endar við botnlanga innst í Þórðargötu þaðan sem hægt er að halda áfram göngu gegnum gróskumikinn skógarlund. Eitt aðaleinkenni Borgarness eru holtin og eitt kennileitið á ofangreindri gönguleið er stór steinn utan í slíku holti. Þar hefur haganlega verið komið fyrir stálskildi með vísu á og undir henni standa stafirnir M.P.