Upplýsingavefurinn; Að eldast

Upplýsingar um hvað eina sem tengist þjónustu fyrir eldra fólk hér á landi, réttindi þess og heilsueflingu má nú í fyrsta sinn nálgast á einum stað á vefnum island.is undir heitinu: „Að eldast.“ Hingað til hafa upplýsingarnar verið dreifðar hér og þar og gjarnan verið flókið fyrir eldra fólk og aðstandendur þess að nálgast þær. „Ætlunin er að island.is verði til framtíðar sá vettvangur sem fyrstur kemur í hugann hjá einstaklingum sem leita sér upplýsinga um ýmsa þjónustu. Vinnan við upplýsingagáttina á island.is er hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast sem er samstarfsverkefni félags- og vinnumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytunum sem að verkefninu standa.

Upplýsingavefurinn; Að eldast - Skessuhorn